Fylltar döðlur með kaffisúkkulaði, collagen og ristuðum möndlum

Þessi uppskrift er mörgum kunn, en hér er hún með smá „twisti“. Fylltar döðlur með kaffisukkulaði, collagen, ristuðum möndlum, möndlusmjöri og salti. Allir geta gert þetta auðvelda „nammi“. Þarf ekki að baka, tekur enga stund í gerð og bragðast dásamlega.

Fylltar döðlur með kaffisúkkulaði, collagen og ristuðum möndlum
12-14 döðlur steinlausar
1/2 tsk af möndlusmjöri til að fylla hverja döðlu
1/2 bolli ristuðar möndlur saxaðar
2 msk collagen duft
um 200 g kaffi súkkulaði ( ég notaði Omnom) má líka nota annað dökkt gæða súkkulaði 

Opnið döðlurnar og fyllið þær með möndlu smjöri og raðið þeim svo á bökunnarklætt brauðform þannig að þær þeki jafnt yfir botninn. Bræðið súkkulaðið í skál yfir vatnsbaði við vægan hita, hrærið collagen dufti þar útí og blandið vel, hellið sukkulaðiblöndunni svo yfir fylltu döðlurnar, stráið söxuðu möndlunum og smá salti yfir allt. Setjið í ísskáp í klukkutíma eða þar til súkkulaðið hefur kólnað alveg. Skerið í sneiðar og geymið í frysti í lokuðu íláti og bælið ykkur í bita og bita eftir þörfum;)

Kristjana Steingrímsdóttir eða Jana eins og hún er ávallt kölluð er viðskiptafræðingur, heilsukokkur, heilsumarkþjálfi frá IIN, yoga kennari í Yogavitund í Garðabæ & heilsu matreiðslu námskeiðahaldari ~ það er hægt að senda henni póst: jana@jana.is til að fá meiri upplýsingar um námskeiðin og bóka þau hjá henni.

Jana elskar að deila öllu því sem tengist heilsu og heilsu uppskriftum með öllum þeim sem hafa áhuga á því og er að birta mikið af efni á instagramsíðu sinni: instagram.com/ janast. Einnig er hún nýbúin að opna heimasíðuna Jana.is þar sem hún er dugleg að setja inn uppskriftirnar sínar. Hún kveðst reyndar mun duglegri að vera í eldhúsinu sínu en tölvunni.

AÐRAR GREINAR

  • All Post
  • Ferðalög
  • Fjármál
  • Heilsa
  • Lífstíll
  • Matur
  • Samskipti
  • Vinsælt
    •   Back
    • Fjölskyldan
    • Sambönd
    •   Back
    • Það sem ég hef lært
    • Óskalistinn
    • Fyrirmynd
    •   Back
    • Uppskriftir
Heildstætt kerfi fyrir betri heilsu

16. apríl, 2024

Ayurveda lífsvísindin – Að fylgja lögmálum náttúrunnar í lífsstíl og fæðu Þessi elstu heilbrigðisvísindi mannkyns, sem…

Um Salina.is

Markmiðið með salina.is er að gefa konum vettvang til að miðla þekkingu sinni.
Að fræða, efla og gleða með kærleikann að leiðarljósi.

Vinsælar færslur

  • All Post
  • Vinsælt

Lífstíll

© 2023 Vefsíðugerð webdew.is